Um Tegundina
NEI þetta er ekki Dobermann. Reyndar eru min pin um 100 árum eldra kyn en dobermann
Miniature Pinscher eru litil hundategund háfætir með kröftugan skrokk. upprunalega frá þýskalandi.
Líf tími er 12-15 ár
þyngd rakki 4-5 kg tík 3.5-4 kg
hæð rakki 25-30cm tík 25-28 cm
Algengar spuringar.
Helstu heilsufars vandamál.
Almennt eru þessu tegund heilsuhraustar en auðvita geta verið gallar í þeim. Minni háttar vandamál í löppum, hnéskeljum eins er hjarta vandamál til í þessari tegund. En hér á íslandi hef ég ekki heyrt mikið um þau mál. þó vissulega séu þau til.
Eru Miniature Pinscher góðir fjölskyldu hundar.
Já en eins og með alla hunda þarf að passa vissa hluti. Sumir þeirra verða mjög passifír á dótið sitt , bein og matinn og verja þessa hluti. þar sem þessi hundar eru upprunalega búnir til til að útrýma meindýrum er ekki ráðlagt að vera með smáfugla, nagdýr eða önnu smá dýr sem þeir geta flokkað undir meindýr. Flestir min pin eru dómerandi jafnvel agressívir við aðra hunda , það á sérstaglega við þegar þeir telja sig vera verja sitt svæði og eigendur sýna.
Börn og Miniature Pinscher
min pin hentar ekki fjölskyldum með mjög ung börn. En ef börnum er kennt að umgangast þá er það ekki vandamál. En auðvita er það missjafnt eftir hundum til dæmis er Álfur einstalega barn góður og lætur allt yfir sig ganga. Dreki er þolinmóður en fer þá inn í búrið sitt sem er hann svæði og bannað að trufla hann þar. Reyndar er þetta regla sem ætti að eiga við alla hunda sama hvaða tegund er verið að ræða um. Ég hef verið með 5 svona hunda og var ynsta barnið 5 ára engin vandamál fyldu því og voru þeir bestu vinir. Enda barninu kennt hvað má og hvað má ekki.
Uppruni
min pin er upprunalega frá þýskalandi og er að öllum líkindum blanda af german pinscher og italian greyhounds. min pin var upprunalega rækaður sem meindýraeyðir í hlöðum þá helst rottur , mýs og snákar og önnur meindýr og er þekktastur fyrir að hafa verið fyrsta tegundin sem var rækuð til þess. Enda hringa þeir sig inn í teppi og stökkva svo fram.
Fóður
Ég mæli með Royal Canin
Hef séð mikið af heilsufarsvanda í öðru fóðri. Ég nota sérstakt fóður og er alveg laus við niðurgang, tannstein og minni heimsóknir til dýralæknis ... ég spara ekki í fóðri og hef bjargað magaveseni hjá mörgum pinnum með Digestive care mini up to 10 kg fyrir fullornu hundana mína
Tíkurnar minar fara á meðgöngufóður fyrir pörun og eru á því fram til seinustu viku meðgöngu þá skipti ég yfir í Starter mother and babydog og það fá hvolparnir mínir líka til 2 mánaða svo fara þeir á hvolpafóður Puppy X small allt frá Royal Canin
Hversu oft á að gefa þeim
frá 3-6 mán að minsta kosti 3 á dag.
6 mán til 1 árs 2 á dag.
1 árs og eldri ein skál á dag en ég gef þeim minni skammt 2 á dag á morgnana og svo á kvöldin.
Allt fóður er viktað hjá mér og reiknast það frá þyngd hunds og kemur hreyfing þar líka inn.
Hreyfing
Miniature Pinscher eru mjög orkumiklir og þufa sinn gaungutúr daglega. Frjáls ganga , fjörur og hunda svæði eru rosa vinsæl hjá þeim.
Litir.
Black and Tan og rauður/rauðbrúnn eru þeir litir sem viðurkendir eru á Íslandi.
þrír litir eru til viðbótar eru til sem eru Brúnn , Chock and Tan og Blue og Tan þessir litir eru ekki leyfðir.
Feldur.
Feldur á að vera snöggur og slettur. mjög lítil umhyrða og fara lítið úr hárum. Gott að kemba þeim einu sinni í mánuði
Hvað meiga þeir ekki borða. á við um alla hunda
Epli, apríkósur, kirsuber, ferskjur plómur, Avókadó, Lyftiduft, matarsódi, Súkkulaði, Koffín, Mjólkurvörur eru ekki góðar fyrir hunda þar sem hafa ekki ensím til að vinna úr þeim en allt í lagi að gefa smá en ekki mikið. Vínber og rúsínur, Laukur, hvítlaukur.
Eiginleikar.
Hugrakkir, forvitin, hrekkjótur (skemmtilegir), lífsglaðir, fjörugur (playful), húsbónda hollur, ástúlegur við fjölskilduna sýna.
Aðvörun
þessir hundar eru mjög örkumiklir þó svo þeir séu litlir þurfa þeir góða hreyfingu, þeir eru þekktir fyrir að vera (escape artist´s) þó svo ég hafi nú ekki lent í því nema tvisvar en þá hafa þeir skilað sér aftur heim sjálfir. þessir hundar er mjög gáfarðir og stúdera fólk mikið til dæmis hvernig á að opna hurðar. ég er með tvo þannig að þeir skipta með sér verkum annar hoppar á hurðahúninn en hinn ýtir á hurðina.
annar þeirra opnar búrið sitt sjálfur ef hann vill. þetta eru hugsandi dýr og alveg hrikalega skemtilegir og uppátækasamir. þeir geta verið mjög þrjóskir og erfiðir ef þeim er ekki haldið á sínum stað
krefjast mikils aga.
passa þarf að koma fram við þá eins og þetta sé stór hundur þetta er EKKI kjölturakki, ef þeir komast í að stjórna gera þeir það og geta jafnvel orðið agressífir það sem gildir með þessa hunda eins og alla hunda er agi agi agi.
þetta er ekki tegund sem hentar öllum.